Monday, October 30, 2006
Mynd frá Einari sundkennara!
Ekki fyrir svo mörgum árum síðan hitti ég Einar sundkennara á förnum vegi og hann tjáði mér að hann ætti í fórum sínum flotta mynd af mér og fleiri krökkum. Ég gaf honum heimilisfangið mitt og hann sendi þessa mynd á mig, og hér er hún nú. Þetta er sem sagt mynd af Sigga Hilmars, Katrínu, Ægi, Óskari Sig og Írisi. Takiði eftir slikkernum sem er á hjólinu hjá mér, keypti hann í Músík og Sport á fimmhundruð kall ásamt Kiss Killers plötu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Þetta er snilldarmynd!
man bara alls ekki eftir þessu augnabliki, vorum við svona ung!!!
Já það er skrýtið til þess að hugsa, en einu sinni þá vorum við ung og fögur!
Post a Comment