Wednesday, November 15, 2006

REUNION VÍÐÓ86 ÞANN 17. NÓVEMBER


Jæja góðir hálsar þá líður senn að "REUNIONINU" okkar þann 17. nóvember á Sólon. Mæting er stundvíslega kl. 21:00 og er fólk beðið um að vera í sómasamlegum lörfum. Skráningum hefur rignt inn síðustu daga þannig að það má búast við gekt fínu stuði, en betur má ef duga skal og ef þið vitið um einhvern sem er í vafa þá endilega látið hinn sama vita af því að hann eða hún mun verða umvafinn kærleika og birtu frá fyrrum samnemendum sínum enda eru öll dýrin í skóginum fyrir löngu orðnir vinir.

Voruð þið búin að heyra af Hafnfirðingnum sem gleypti strokleðrið?
Hann missti minnið auminginn.


Seinnipartinn í dag, á morgun og föstudag mun ég setja inn síðustu myndirnar sem hafa borist, þær eru margar hverjar alveg kostulegar þannig að haldið endilega áfram að fylgjast með.
Upplýsingar um verð ættu að liggja fyrir á morgun.

2 comments:

Anonymous said...

Frábær mynd, ég sé að ég hef ekkert breyst nema kannski að gelgjulúkkið hafi dalað örlítið. En hvernig er með þig Íris? Þú ert vonandi búin að skrá þig, ef ekki þá er bara að drífa í því núna!!!
Sjáumst öll á föstudaginn.

Anonymous said...

Ég bíð spennt eftir myndunum og reunioninu sjálfu auðvitað. Er annars að fá smá panik attack - yfir því að vera of hrukkót, of feit, of gráhærð, of hvít, of stór, of .... og geti þar af leiðandi ekki látið sjá mig svo að ég mæti ef ég kemst að í Extreme make over fyrir morgundaginn.

Nei ég er að sjálfsögðu bara að bulla - mæti hress og kát með kílóin, hrukkurnar, gráu hári, íslenska húðlitinn og allan pakkann.