Thursday, November 09, 2006

Óskar og Palli í Simba outfitti!


Óskar og Palli voru líka mikið í stíl og skörtuðu þessu bláa dressi á skólaballi í 5 eða 6 bekk. Sýnist þetta vera Aðalbjörg sem situr fyrir aftan Palla og bíður eftir að sér verði boðið upp. Alla er í sínu fínasta pússi, gulum páskasamfestingi. Svei mér þá ef þetta er ekki Davíð þarna í grænu úlpunni, það hefur greinilega enginn boðið honum upp svona útlítandi.
Man að ég og Palli fengum þessi bláu föt fyrir að koma fram í tískusýningu í Villta Trylla Villa ef einhver man eftir þeim stað.

Allt í stíl nema buxurnar!


Á þessum tíma þá ætluðu Palli og Soffía að verða hjón. Þau keyptu sér því eins úlpur og peysur í stíl til þess að staðfesta ráðahaginn.

Skrá sig, skrá sig, halló er einhver þarna úti?


Senn líður nú að endurfundum og því ekki seinna vænna að skrá sig til þátttöku. Þeir sem ekki skrá sig í tíma, verða afmáðir af bekkjarlistanum og verður aldrei boðið aftur og hananú!

Aðalsteinn að maula kex

Þetta er hann Aðalsteinn sem margir muna eftir sem Alla. Sýnist hann vera með eitthvað óhreint í pokahorninu, það er allavega einhver sakamannasvipur á kauða.

Raggi á röltinu!

Þessa mynd sendi Ástráður oft kallaður Billi, af Ragnari á röltinu í einhverju skólaferðalaginu. Þarna má sjá Ingvar leikfimikennara í baksýn og það sést meira að segja grilla í mottuna.

Thursday, November 02, 2006

Hver man ekki eftir þessu!

Óskar Hafliði fór á kostum í þessum leik og það varð hreinlega allt vitlaust í skálanum.

Örþreyttir skíðamenn!

Óskar Sig og Valur örþreyttir eftir erfiðan dag í brekkunum. Sýnist Óskar vera að drepast í rassinum, hefur líklega dottið einum of oft enda ekki mjög burðugur á skíðum.

MUNA AÐ SKRÁ SIG - KOMA SVO1


- HÆGT ER AÐ SKRÁ SIG MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA TÖLVUPÓST Á ÞESSI NETFÖNG -

gudrung@bifrost.is - oskars@vgk.is - malaraverktakar@simnet.is - mk@simnet.is - kfe@simnet.is

ALLTOF LÍTIÐ HEFUR VERIÐ UM ÞAÐ AÐ FÓLK SÉ BÚIÐ AÐ LÁTA VITA AÐ ÞAÐ ÆTLI AÐ KOMA. ÞAÐ ER ENGU AÐ SÍÐUR MJÖG MIKILVÆGT AÐ FÓLK SKRÁI SIG SEM FYRST SVO VIÐ VITUM HVAÐ VIÐ EIGUM AÐ KAUPA MIKIÐ AF SNÚÐUM OG KÓKÓMJÓLK

Wednesday, November 01, 2006

Flott uppstilling!

Hákon, Valur, Elías, Svavar, Tómas, Brynjar, Þorsteinn, Finnbogi, Borgar, Davíð og Sigurður eftir velheppnaðan knattspyrnuleik í Þórsmörk.

Vasabilliard!

Stelpurnar frekar léttklæddar og komnar í pokann og strákarnir standa eins og hrægammar yfir þeim og einn farinn að gæla við snákinn. Hvurn fjandann er Ægir að gera, jóðla ástarvísur?

Þetta er víst 6-Z veturinn 1982-83

Þessa bekkjarmynd sendi Hjölli einnig. Ég man ekki hvaða bekkur þetta er en það eru nokkur kunnugleg andlit á þessari mynd. Hermann, Ólafur, Gunni, Finnbogi, Rakel, Rósa, Þórunn, Elín, Guðrún Sóley, Bjarni, Borgar, Brynjar, Hlynur, Valur, Katrín, Íris, Sævar, Hjörleifur, Gummi, Auður, Steinunn Alda, Birna. Kennari Þóra Flygenring.

Kennarahrekkur!

Þessa mynd sendi Hjölli frá Noregi. Þarna eru Svenni og Gunni með Þórdísi Móses á milli sín. Ekki veit ég hvurn fjárann þeir eru að gera en ég get mér til að þeir hafi óhreint mjöl í pokahorninu. Hvað eru þeir með á hausnum, átti þetta að vera töff eða er þetta grín? Sé að Gunni er í DonCano galla sem var klassíker á þessum tíma. Man að ég keypti mér Don Cano galla fyrir mánaðarlaun í unglingavinnunni.

Muna að skrá sig!

Vill endilega minna fólk á að skrá sig í tíma, annað hvort í síma eða á rafrænu formi með e-pósti.
Boðið verður uppá einhverjar veitingar svo nefndin þarf að vita svona nokkurn vegin hvursu margir mæta, miðaverði verður þó haldið í algeru hófi. Hægt er að skrá sig hjá Óskari, Svenna, Guðrúnu Elínu, Þórunni, Eyrúnu og Ragnheiði sem saman mynda hina geysiöflugu endurfundanefnd.

Tuesday, October 31, 2006

Múnað í Mörkinni!

Þessir pörupiltar ákváðu upp á sitt einsdæmi að gefa skít í skólayfirvöld með því að bera á sér þjóhnappana í Þórsmörk. Þeir höfðu þó ekki erindi fyrir erfiðið enda öllum skítsama um skítuga þjóhnappa. Heyrst hefur að Brynjar, Svavar og Finnbogi ætli sér að endurtaka leikinn á endurfundum okkar þann 17. nóvember og því til mikils að hlakka.

Stjörnustælar!

Elías var heldur ekki mikið fyrir að láta mynda sig. Hér reynir hann að henda grús í myndatökumanninn, hvílík heift! Takið vel eftir hekluðu vestispeysunni sem Sprelías er í, hann heklaði þetta sjálfur helv.. melurinn.

Fyrirsæta eða betlari?

Eins og flestir vita þá var Elías Óskar Illugason frekar tæpur á þessum árum. Hann átti það til að liggja á göngunum í Víðistaðaskóla og betla peninga fyrir snúð og allskyns óþvera. Hér er hann í skólaferðalagi að betla pening fyrir sítrónu Svala (meiri vitleysingurinn).

Finni gerir hosur sínar grænar fyrir Steinu!

Greinilega eitthvað í gangi þarna. Finnbogi að láta Steinu vita að hann sé til í tuskið með því að ýta duglega í hana öxlinni. Já menn komu skilaboðum með ýmsu móti til skila í þá daga með misjöfnum árangri þó. Held að þessi aðferð hjá Finna hafi nú ekki gengið upp, en hvað veit ég.

Hann er eins og hreindýr!

Finnbogi Gylfason bregður hér fyrir sig hinni alræmdu kímnigáfu og læst vera skelfingu lostið hreindýr. Svona var tarfurinn sem ég skaut á Grænlandi í sumar á svipinn þegar ég hafði skotið af honum vinstra hornið.

Monday, October 30, 2006

Mynd frá Einari sundkennara!

Ekki fyrir svo mörgum árum síðan hitti ég Einar sundkennara á förnum vegi og hann tjáði mér að hann ætti í fórum sínum flotta mynd af mér og fleiri krökkum. Ég gaf honum heimilisfangið mitt og hann sendi þessa mynd á mig, og hér er hún nú. Þetta er sem sagt mynd af Sigga Hilmars, Katrínu, Ægi, Óskari Sig og Írisi. Takiði eftir slikkernum sem er á hjólinu hjá mér, keypti hann í Músík og Sport á fimmhundruð kall ásamt Kiss Killers plötu.

Lúnir kennarar í Þórsmerkurferð

Ingvar, Sigrún og Maggi hvíti í Þórsmörk.